Ársskýrsla 2024 er komin út
Ný vaxtarstefna til fimm ára var sett á árinu. Afkoma var umfram væntingar og Reitir fjárfestu kröftuglega í kaupum á fjölbreyttum eignum, þróun og uppbyggingu.

Ársskýrsla Reita hefur verið gefin út á https://www.arsskyrsla2024.reitir.is/
Á árinu 2024 setti félagið sér nýja vaxtarstefnu til fimm ára, (2024-2028), þar sem skilgreindar eru fjórar megin áherslur; vöxtur og arðsemi, þróun í nýjum eignarflokkum, sjálfbærni og framúrskarandi rekstur. Grunnmarkmið vaxtarstefnunnar er kröftugur og arðbær vöxtur þannig að eignir félagsins verði 300 ma.kr. í lok tímabilsins.
Fjárfest í vexti fyrir 18,1 ma.kr.
Lagt var upp með markviss verkefni í takt við vaxtarstefnuna og góður árangur náðist á öllum þremur sviðum kjarnastarfsemi félagsins; þróun, kaupum og uppbyggingu. Auk þess var lögð aukin áhersla á þjónustu sem er fjórðu megin stoð starfseminnar og unnið að fjölbreyttu framboði þjónustulausna sem bæta upplifun viðskiptavina og gagnast samfélaginu.
Fjárfest var kröftuglega í nýjum verkefnum á árinu, fyrir um 18,1 ma.kr. sem er talsvert umfram áætlun félagsins um 11 ma.kr. fjárfestingu. Þar af var 9,6 milljarða króna varið í nýjar eignir og rúmir 8,5 milljarða króna fjárfest í endurbætum á fasteignum félagsins.
Góð rekstrarafkoma
Árangur á öllum þáttum kjarnastarfseminnar skilaði sér í góðum rekstrarhagnaði félagsins á árinu. Aukningu tekna milli ára má rekja til verðlagshreyfinga og endurnýjun leigusamninga en nýjar eignir skiluðu um 200 m.kr. aukningu. Rekstrarhagnaður félagsins fyrir matsbreytingu nam 10.972 m.kr. og jókst um 822 m.kr. eða 8,1%.
Guðni Aðalsteinsson, forstjóri:
„Eftirtektarverður árangur félagsins á árinu sem leið er afrakstur góðrar samvinnu og metnaðarfullrar vaxtarstefnu sem var leiðarljós í því sem félagið tók sér fyrir hendur. Það er ánægjulegt að sjá hversu miklum framgangi við náðum strax á fyrsta ári nýrrar stefnu en sá árangur er til komin vegna öflugrar samvinnu allra hagaðila félagsins og vil ég þakka stjórn, hluthöfum, starfsfólki, viðskiptavinum og samstarfsaðilum fyrir farsælt samstarf. Framgangur ársins gefur okkur meðbyr á nýju ár þar sem vaxtarstefna félagsins er leiðandi stef í allri ákvarðanatöku og verkefnum. Auk skýrra markmiða er verðugur tilgangur það sem hvetur okkur áfram en við setjum stefnuna á að vera leiðandi afl í uppbyggingu og rekstri fasteigna. Við fjárfestum í nýjum eignaflokkum og þróunarverkefnum af krafti og leggjum þannig okkar framlag á vogarskálarnar til þess mæta eftirspurn eftir fasteignum og innviðum, samfélaginu til hagsbóta.“
Ársskýrsla 2024
Í ársskýrslu félagsins fá finna ávarp forstjóra, yfirlit yfir verkefni ársins, stefnu, upplýsingar um sjálfbærni ásamt yfirlit yfir eignasafnið. Í ársreikningi samstæðunnar má finna endurskoðað uppgjör ásamt ófjárhagslegri upplýsingagjöf en í ár eru birtar ítarlegar upplýsingar um sjálfbærni í þeim kafla ársreikningsins.