Til baka
Nauthólsvegur
Við Hotel Reykjavík Natura, eru uppi hugmyndir um uppbyggingu og styrkingu svæðisins.
![](https://images.prismic.io/reitir/0af0cd3b-fcf6-4f70-933c-83361cd64e2e_loftleidir-loftmynd3143.jpeg?auto=compress,format)
Reitir keyptu skrifstofubyggingu Icelandair í árslok 2020 í því augnamiði að skapa heildstæða framtíðarsýn fyrir svæðið og gera reitinn að virkari þátttakanda í Vatnsmýri framtíðarinnar.
Reykjavíkurborg fór af stað með hugmyndaleit um uppbyggingu lífsgæðakjarna í borginni. Reitir voru valdir til áframhaldandi viðræðna um uppbyggingu lífsgæðakjarna á Loftleiðasvæðinu þar sem búseta, samvera, heilsuefling og mannlíf eru lykilstef. Einn valmöguleikanna í skoðun er hjúkrunarheimili í skrifstofubyggingunni við Nauthólsveg.
Staðsetning
Nauthólsvegur