Til baka

Korputún

Korputún er nýr atvinnukjarni á mörkum Reykjavíkur og Mosfellsbæjar sem er skipulagður út frá hugmyndum um sjálfbærni og samnýtingu.

Í Korputúni geta fyrirtæki fengið húsnæði frá um 500 fermetrum upp í nokkur þúsund fermetra að stærð. Vænst er þess að gatnagerð hefjist á árinu 2024 og uppbygging húsnæðis strax í kjölfarið.

Svæðið er skipulagt út frá kröfum BREEAM Communities vistvottunarstaðlinum sem gerir miklar kröfur til þróunaraðila um þá þætti sem snúa að umhverfinu og vellíðan þeirra sem dvelja eða eiga leið um svæðið.

Á www.korputun.is má finna allar upplýsingar um svæðið og framboð af húsnæði þar.

Staðsetning

Korputún - atvinnukjarni í landi Blikastaða í Mosfellsbæ