Til baka

Kringlureitur - 1. áfangi

Drög að deiliskipulagstillögu fyrir fyrsta áfanga nýrrar uppbyggingar á Kringlusvæðinu voru kynnt almenningi á fundi Reykjavíkurborgar í Sambíóunum í Kringlunni þriðjudaginn 14. maí. Um er að ræða tillögu fyrir svæði sem nær til lóðanna Kringlan 1-3 og Kringlan 5.

Gamla Morgunblaðsprentsmiðjan fær nýtt líf innan um nýja íbúðabyggð við Kringluna

Meginmarkmið tillögunnar er að móta nýtt og þétt borgarumhverfi þar sem margbreytileikinn fær notið sín. Í fyrsta áfanga er gert ráð fyrir allt að 450 íbúðum. Byggðamynstur mun einkennast af fjölbreyttum hlutföllum og útliti en gert er ráð fyrir að flest íbúðahúsanna verði þriggja til sex hæða byggingar.

Skjólgóð og sólrík götu- og torgrými tengjast aðaltorgi svæðisins sem verður á nýrri gönguleið úr Hamrahlíð í Kringluna.

Yfirlitsmynd um áformaða uppbyggingu í fyrsta fasa uppbyggingar á Kringlusvæðinu.

Yfirlitsmynd um áformaða uppbyggingu í fyrsta fasa uppbyggingar á Kringlusvæðinu.

Skipulag hverfisins er unnið samkvæmt BREEAM Communities sjálfbærnistaðlinum og verður umferð akandi, hjólandi og gangandi gert jafnhátt undir höfði með sérstakri áherslu á gönguvænt umhverfi.

Höfundar skipulagsins eru danska teiknistofan Henning Larsen ásamt THG arkitektum og er tillagan gerð fyrir Reiti fasteignafélag.

"Þetta nýja borgarhverfi mun endurspegla anda gömlu Reykjavíkur sem birtist í ólíkum þakgerðum, hlutföllum, formum og litum. Götumyndin tekur mið af óreglulegum strætum miðborgarinnar og gróðursælum reitum. Hverfið verður þannig allt í senn lifandi, spennandi og hlýlegt þar sem umferð akandi, hjólandi og gangandi er gert jafnhátt undir höfði um vistgötu hverfisins.  Við sjáum fyrir okkur líflegt borgarhverfi með áherslu á skjólsæl græn almenningssvæði sem styrkir nærsamfélagið með miðjusettu torgi sem umlukið er veitinga- og kaffihúsum auk menningartengdri starfsemi. Tillagan gerir ráð fyrir að breyta gömlu prentsmiðju Morgunblaðsins í menningarmiðstöð sem felur í sér að hluti sögunnar verður partur af hinu nýja borgarhverfi.  - Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita fasteignafélags."

Horft frá torgi til Sjova

Á svæðinu verður rými til að njóta á skjólsælu torgi með veitingum og menningarstarfsemi.

Drög Reita að deiliskipulag fyrir fyrsta áfanga Kringlusvæðisins. Unninn af Henning Larsen og THG.

Skjólgóð og sólrík götu- og torgrými tengjast aðaltorgi svæðisins sem verður á nýrri gönguleið úr Hamrahlíð í Kringluna.

Gróðursælir reitir innan um húsin færa hlýleika inn á vistgötur svæðisins.

Gróðursælir reitir innan um húsin færa hlýleika inn á vistgötur svæðisins.

Uppbygging íbúða á svæðinu endurspeglar áherslur Reita á að vera leiðandi afl í uppbyggingu innviða sem styðja við sjálfbært, samkeppnishæft og heilsusamlegt samfélag. Gert er ráð fyrir að hægt verði að hefja framkvæmdir snemma á árinu 2025 og að fyrsti áfangi af þremur á Kringlusvæðinu öllu verði fullbyggður síðla árs 2030.

Staðsetning

Kringlan 1-3, 103 Reykjavík