Til baka

Rammasamningur um uppbyggingu fimm hjúkrunarheimila og verksamningur um uppbyggingu þess fyrsta

Reitir fasteignafélag og fasteignaþróunarfélagið Íslenskar fasteignir hafa undirritað rammasamning um uppbyggingu fimm hjúkrunarheimila með samtals um 400-600 rýmum á næstu árum. Heildarumfang samstarfsins gæti numið 24 til 36 milljörðum króna. Staðsetningar og útfærsla hjúkrunarheimila verður í samræmi við stefnu og kröfur stjórnvalda um uppbyggingu hjúkrunarheimila á komandi árum.

Á myndinni eru, frá vinstri: Sveinn Björnsson, framkvæmdastjóri Íslenskra fasteigna, Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita, Ingveldur Ásta Björnsdóttir, framkvæmdastjóri viðskipta hjá Reitum og Friðjón Sigurðarson, framkvæmdastjóri þróunar hjá Reitum.

Samkvæmt samkomulaginu munu Reitir fjármagna framkvæmdir hjúkrunarheimilanna og verður eigandi þeirra, en Íslenskar fasteignir mun hafa umsjón með hönnun þeirra og annast byggingarstjórnun á framkvæmdatíma.

Samhliða rammasamningi hafa aðilar gert með sér samkomulag um þróun og byggingu fyrsta hjúkrunarheimilisins. Um er að ræða allt að 7.000 fermetra byggingu með 80 til 100 rýmum sem hönnuð verður samkvæmt viðmiðum heilbrigðis­ráðuneytisins. Reiknað er með að uppbyggingu hjúkrunarheimilisins verði lokið 2026. Nýtt byggingafélag verður stofnað um uppbyggingu hjúkrunarheimilisins sem verður í eigu samningsaðila. Að uppbyggingu lokinni munu Reitir kaupa fasteignina.

Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita:
„Með samningnum er stigið stórt skref í þeirri stefnu félagsins að taka þátt í mikilvægri innviðauppbyggingu á Íslandi og liður í þeirri stefnu okkar að stækka eignasafn Reita.

Samkomulagið er jafnframt í takt við fyrirætlanir stjórnvalda, en skv. skýrslu vinnuhóps Fjármála- og Heilbrigðisráðuneytis um breytt fyrirkomulag fasteigna vegna hjúkrunarheimila, sem kom út fyrr á árinu, er gert ráð fyrir þörf á byggingu a.m.k. 90-100 hjúkrunarrýma á ári fram til ársins 2034. 

Við hjá Reitum fögnum tækifærinu til að leggja lóð á vogarskálarnar í þessu samfélagslega mikilvæga verkefni og finnum til ábyrgðar, enda aðkallandi að fjölga hjúkrunarrýmum hratt en ekki síður að vanda vel til verka.„

Sveinn Björnsson, framkvæmdastjóri Íslenskra fasteigna:
„Við hlökkum til að takast á við þetta umfangsmikla verkefni. Framundan er náið samstarf við ríki og sveitarfélög um val á staðsetningum og hönnun hjúkrunarheimilanna þannig að gæði heimilanna og þjónusta þeirra verði með sem bestum hætti fyrir íbúa hjúkrunarheimilanna, starfsfólks þeirra og nærliggjandi samfélags.“

Samningarnir eru gerðir með fyrirvara um samþykki stjórnar Reita fasteignafélags.

Fleiri fréttir

Ráðherra kom í heimsókn í Kringluna

Menningar - og viðskiptaráðherra, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, heimsótti Kringluna á dögunum.

Nýir stjórnendur og nýtt skipurit

Í kjölfar stefnumótunarvinnu og nýrrar stefnu um kraftmikinn vöxt á næstu árum hefur Reitir fasteignafélag innleitt nýtt skipurit. Nýju skipuriti er ætlað að efla vöxt félagsins með skýrri verkaskiptingu og skilvirkum ákvörðunartökuferlum.

Urriðaholtsstræti 2
Reitir kaupa Urriðaholtsstræti 2 í Garðabæ

Húsið var reist árið 2022 og hýsir m.a. skrifstofur Bláa lónsins og Krambúðina.