Svansvottaðar endurbætur
Skrifstofa Umhverfisstofnunar við Suðurlandsbraut 24 var fyrsta húsnæðið á Norðurlöndum til að hljóta Svansvottun fyrir endurbætur á húsnæði.

Svansvottun húsnæðis Umhverfisstofnunar var mekrur áfangi, vottunin var til marks um metnað Reita og Umhverfisstofnuanr til að beita sér fyrir umbótum í umhverfismálum þegar kemur að byggingum.
Viðmið Svansins fyrir endurbætur eru umfangsmikil þar sem markmiðið er að lágmarka áhrif framkvæmda á umhverfi og heilsu. Svansvottunin tryggir gæði byggingarinnar meðal annars með betri innivist sem er tryggð með ströngum kröfum á efnainnihald byggingavara. Í Svansvottun er einnig lögð áhersla á endurnotkun byggingarefna og að úrgangur fari í endurvinnslufarveg.
Sem dæmi um árangur sem náðist í framkvæmdunum við Suðurlandsbraut 24 má nefna:
- Flokkunarhlutfall byggingarúrgangs var 94,4% á framkvæmdatíma
- Áætlað er að notkun loftræsikerfis með hitaendurvinnslu muni draga úr orkunotkun um 40%
- Öll málning og sparsl sem var notað var umhverfisvottað
- Álrimlar, korkflísar og fleiri byggingarhlutir voru notaðir áfram
- Veglegt barnaherbergi var sett upp til að bæta aðstöðu starfsmanna
Aukinheldur höfðu endurbætur þessar, sem og aðrar svansvottaðar framkvæmdir, jákvæð áhrif á íslenska birgja sem hafa sýnilega aukið úrval af vottuðum og samþykktum byggingarefnum síðustu ár.